Flugfreyjustjórnin

20% nýrrar ríkisstjórnar eru flugfreyjur.  Að minnsta kosti í hjarta sínu.

 

Þetta getur ekki klikkað.

 

Því ef það er eitthvað sem flugfreyjur kunna er það að vinna undir álagi-í kappi við tímann.  Þær búa yfir ótal aðferðum til að gera stóru vandamálin agnarsmá.

 

Iss kreppan er bara osl-sto-osl með troðfulla vél á háannatíma.

 

Þær eiga pottþétt eftir að klára daginn þannig að allir ganga brosandi frá borði.

 

Vona bara að þær skilji ekki vélina eftir í rúst............

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Sigríður Úlfarsdóttir

Góð samlíking

Helga Sigríður Úlfarsdóttir, 2.2.2009 kl. 15:26

2 identicon

Kvöldið..

Smá pæling.. Icelandair fækkaði flugfreyjum/þjónum um 20% um borð og nýja ríkisstjórnin er með 20% hlutfall af flugfreyjum... er þarna eitthvað samhengi? spyr sá sem ekki veit!!

Sigrún Jóns sem er að pæla....

Sigrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 19:11

3 Smámynd: Kristín Bjarnadóttir

Sigrún það hlýtur að vera!!  sé samt ekki alveg hvaða samhengi....en þetta getur að sjálfsögðu ekki verið tilviljun.

Skemmtilegt viðtalið annars við þig í dag, greinilegt að visir er farinn að lesa bloggið mitt 

Gott að sjá þig líka Helga mín!

Kristín Bjarnadóttir, 2.2.2009 kl. 22:09

4 identicon

Didda mín!

Var að velta því fyrir mér hvert þessi 20% fóru? Í ríkisstjórn? Kannski?

Bara að spá..

Bkv.

Sigrún

Sigrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 22:31

5 Smámynd: Helena Leifsdóttir

Atvinnuauglýsing á mbl. gæti hljómað svo;

Flugfreyjur óskast, mikil vinna framundan
Íslenska þjóðarbúið

ps. 9 glæsidrottiningar sátu við sofuborðið mitt í dag þar á meðal flugfreyja ein af mörgum innan Aglow á Íslandi. Það sem einkennir þessar stelpur er frábær skipulagsgáfa og vinnusemi. Kristín mín þú ert í úrvalshóp dugmikilla kvenna!

Vertu Guði falin og allt þitt hús.

Helena Leifsdóttir, 4.2.2009 kl. 21:30

6 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Elsku Didda, skemmtilegar vangaveltur hjá þér. Er alltaf að kíkja á bloggið þitt og vonast eftir nýrri færslu í þínum skemmtilega ritstíl...... er ekki eitthvað á leiðinni bráðum???

Bestu kveðjur,

Lilja G. Bolladóttir, 5.2.2009 kl. 15:45

7 Smámynd: Kristín Bjarnadóttir

hæ Lilja mín, var að sjóða eittthvað saman hreinlega á meðan þú kíktir hér við

Helena við krossum putta að vinnusemin og skipulagsgáfan hafi ekki horfið frá nýjustu ráðherrunum okkar, um að gera líka að nýta atvinnulausar flugfreyjur í koma málunum í gegn, gætu staðið fyrir utan Seðlabankann til dæmis og lamið í kaffikönnur!  bestu kveðjur

Kristín Bjarnadóttir, 5.2.2009 kl. 16:38

8 identicon

Ja flugfreyjunum getum vid treyst fyrir ad hjalpa vid ad retta thjodarskutuna af thvi thaer eru vinnusamar og vandvirkar og duglegustu konur!  Um thad get eg vitnad thar sem eg var svo heppin ad vinna med theim allnokkrum yfir ekki ofa arin.  Og sjaidi bara hvad getur hafst upp ur thvi ad vera flugfreyja, Didda min, hver veit hvar thu endar elskan?  hmmm

Verum stolt af theim og reynum ad stydja vid bakid a theim thar sem thetta er vandasamt verkefni og ekki ofundsverd stadan.  Konur thurfa ad standa saman, segi thetta aldrei of oft!  Barattukvedjur fra Hollandi!

Ragna (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband