Litningalottóið

Ég er brennimerkt pabba mínum.  Við erum það lík að það fer ekki á milli mála, þekki fólk pabba á annað borð, hvers dóttir ég er.

 

Sumir spyrja hvort ég sé Bjarnadóttir, aðrir spyrja beint út í fréttir af pabba og enn aðrir kynna sig bara og biðja fyrir kveðju heim.

 

Fyrst var ég voða upptekin af því að spyrja hvernig fólk kveikti en þá var yfirleitt horft góðlátlega á mig og sagt:” ÞIÐ ERUÐ ALVEG EINS!”

Ég er hætt að spyrja.  Nenni ekki að heyra það einu sinni enn að ég líti út eins og 63 ára gamall karl.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: H G

Ansans ári mun þessi 63 ára kall vera laglegur - ef þið eruð alveg eins! - Að gamni slepptu (eða þannig) var oft sagt í gamla daga er við pabbi þinn vorum  yngri:"einkennilegt hvað fallegt barnið getur samt líkst föður sínum!" 

Litningar eru ólíkindatól, sbr. tvíbura/systkini með gjörólík kynþáttaeinkenni.

H G, 27.11.2008 kl. 22:45

2 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Hahahahaha

Þú ert sko frábær!!!

Lilja G. Bolladóttir, 28.11.2008 kl. 06:03

3 Smámynd: Helga Sigríður Úlfarsdóttir

Enda ekki leiðum að líkjast Didda mín - kallinn hann pabbi þinn er bráðmyndalegur maður - ekki satt???

Helga Sigríður Úlfarsdóttir, 28.11.2008 kl. 08:29

4 Smámynd: Hrund Traustadóttir

Nákvæmlega. Svo er spurning hvort pabba þínum finnist það gott hrós að vera líkt við 36 ára gamlan kvenmann?

Hrund Traustadóttir, 28.11.2008 kl. 17:55

5 Smámynd: Kristín Bjarnadóttir

Annars er ég mjög þakklát pabbi fyrir að vera góður gæi væri verra ef ég gengi um bæinn og fólk áttaði sig stamstundis á að þarna færi dóttir hans Bjarna Brjálæðings!

Kristín Bjarnadóttir, 28.11.2008 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband