Hefnd litla mannsins
12.5.2009 | 11:45
Held því oft fram að ég sé ekkert reið út af öllu þessu sem gengið hefur á í vetur. Reiði sé lamandi tilfinning sem hindri mann í að gera sitt besta.
Við Snorri (3) fórum í bankann áðan og á borðinu sat þessi fína nammiskál full af girnilegum brjóstsykri. Hann teygir fram lúkuna og ég segi af gömlum vana bara einn! En þegar hann langar í meira gerist eitthvað.
Það blossaði upp í mér reiðin og mér fannst út í hött að setja hámark á hvað 3 ára drengur, sem átti einu sinni peninga í þessum banka, sem búið var að leggja reglulega til hliðar fyrir hann frá fæðingu, gæti fengið mikinn brjóstsykur.
Ég horfði því á hann taka fulla lúku og sagði ekki orð.
Mundi svo eftir Bryndísi og Bjarna og að þau hefðu líka átt fullt af peningum í þessum banka.
Gjaldkerinn þurfti á þessum tímapunkti að bregða sér frá og á meðan notuðum við tækifærið og tæmdum skálina í vasana á úlpunni hans Snorra.
Sátum svo bæði alsaklaus og hefðum flautað ef við kynnum.
Á leiðinni út í bíl rann æðið af mér er ég gerði mér grein fyrir að ég hafði kennt syni mínum að ræna banka.
En mikið hrikalega var þetta góður brjóstsykur.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:00 | Facebook
Athugasemdir
Hæ hæ Kristín mín.
Finnst þú SVO skemmtilegur penni;) Gott hjá ykkur að tæma skálina.....
Ég keypti Vikunna á föstudaginn, fínt viðtal og flottar myndir af ykkur fjölskyldunni.
Hafðu það gott,
Inga Rós
Inga Rós (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 15:55
Þetta er bara brjálæðislega fyndin lítil saga:) Það er svo gaman að lesa síðuna þína mín kæra:) Brosi alltaf hvort sem það er í gegnum tárin eða út í annað:)
Baráttukveðjur,
Hildur
Hildur Dungal (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 22:18
Kæra Hildur, takk fyrir að kvitta það er svo gaman að sjá hverjir brosa með okkur í gegnum þetta.
Bestur kveðjur í baráttunni
Kristín Bjarnadóttir, 13.5.2009 kl. 18:04
Elsku Inga Rós, gleymdi alveg að svara þér. Takk fyrir hlý orð í okkar garð.
Vona að þú hafi það sem allra best.
Bestu kveðjur
Kristín Bjarnadóttir, 13.5.2009 kl. 19:53
Mér finnst þessi tilfinning sem þú ert að lýsa hér, mjög skiljanleg. En það er munur á því hvort verið er að "stela" brjóstsykri eða peningum.
Enda var brjóstskykurinn frítt.
Takk fyrir hlý orð til mín á mínu bloggi.
Á eftir að skoða Vikuna og viðtalið við þig, þar sem það er kreppa þá kíki ég á þetta hjá tengdó einhvern daginni. En það er góð forsíðumyndin af þér.
Gangi ykkur allt í haginn.
Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 14.5.2009 kl. 11:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.