Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Kveðjustund

Amma hans Árna lést aðfararnótt sumardagsins fyrsta.  Stórkostleg kona og á undan sinni samtíð á svo margan hátt.

 

Hún átti 5 börn, 18 barnabörn og 17 barnabarnabörn en setti sig inn í líf þeirra allra. Mundi ekki aðeins afmælisdaga og stórviðburði heldur litlu hversdagslegu atriðin sem skipta svo miklu máli.

 

Man svo vel hvað ég var hissa þegar hún hringdi í okkur eftir að Birgitta Haukdal vann í eurovision um árið til að samgleðjast Bryndís Ingu sem sá auðvitað ekki sólina fyrir Birgittu á þeim tíma.

 

Mér þótti svo vænt um hvað hún sýndi börnunum mínum, mér, fjölskyldu minni og vinum áhuga. Hún vissi sem er að blóðtengslin ein mynda ekki fjölskyldu og hún lét mér líða eins og ég væri hluti af sinni.

 

Mig langaði svo að segja henni hvað mér þætti vænt um hana og hvað mér þykir vænt um hvernig hún tók mér.

 

Vissi ekki þá að kveðjustundin ein væri eftir.

 

 


Tryggjum börnum dýrt morgunkorn!

Búin að liggja í rúminu meira og minna í þrjá daga.  Er það ekki týpískt að um leið og ganga fer betur, bresta einhverjar varnir og maður leggst í rúmið?

 

Er ekki líka týpískt að þegar ég hafði legið í rúminu í tvo tíma, opnaði Snorri (3) hurðina hægt, horfði á mig eins og ég væri eitruð og spurði af hverju ertu ALLTAF veik?

 

Komum annars við í Krónunni áðan, gripum tvo kassa af morgunkorni og þvottaefni og vorum beðin um 2800 krónur við kassann.

 

2800 krónur.

 

Þvottaefnið átti að kosta um 1700, annar morgunkornspakkinn um 700 og hinn um 400.

 

Snorri varð eðlilega svolítið súr yfir að skilja morgunkornið eftir í búðinni, þó hann sæi ekkert eftir þvottaefninu.

 

Á leiðinni heim hljómaði framboðsauglýsing á milli laga og ákveðin konurödd talaði um að bæta þyrfti hag heimilanna, hlúa að fjölskyldunum og byggja velferðarbrú.

 

Mamma heyrðirðu?

 

Ha?

 

Mamma heyrðirðu? Konan sagði að dýrt morgunmat væri fyrir börn!

 

Og gott ef það var ekki það sem hún sagði.  Þýðir ekki velferðarbrú að ég geti keypt allan venjulegan mat fyrir fjölskylduna mína?

 

Og þvottaefni líka?

 

frábær frétt

Frábær umfjöllunin um skjaldborg heimilanna á stöð 2 í kvöld.  Skjaldborgina sem lögfræðingurinn sem rætt var við vildi meina að væri ekki einu sinni tjaldborg.

 

Endilega gefið ykkur tíma til að horfa á þetta ef þið sáuð þetta ekki.

 

Við umfjöllunina má bæta að fjármálastofnanir alfrysta aðeins fasteignaveðlán á fyrsta veðrétti.  Fólk fær því ekki að velja að losa sig við óhagstæðari lán á seinni veðréttum og það þrátt fyrir að lán sé samt á öruggum veðrétti miðað við fasteignamat.  Í þessu sambandi er heldur ekkert tillit tekið til atvinnustöðu fólks, reglur eru reglur.

 

Svo gildir greiðsluaðlögunin ekki fyrir verktaka.

 

 Lögin ná ekki til einstaklinga sem undangengin þrjú ár hafa borið ótakmarkaða ábyrgð á atvinnustarfsemi, hvort sem þeir hafa lagt stund á hana einir eða í félagi við aðra, nema því aðeins að atvinnurekstri hafi verið hætt og þær skuldir sem stafa frá atvinnurekstrinum séu tiltölulega lítill hluti af heildarskuldum þeirra.(http://www.althingi.is/altext/136/s/0845.html)

 

Skrítið að einn hópur fólks sé tekinn svona út úr.

 

Er það virkilega vilji Alþingis að makar og börn verktaka njóti ekki sömu úrræða og aðrir?

 

Getur það verið að maður sem tekur lán með veði í fasteign sinni og kaupir sér fjórhjól og crossara geti nýtt sér úrræðið en ekki ef hann keypti sér gröfu og traktor til að sinna eigin atvinnustarfssemi?

 

Um daginn var það búsáhaldabyltingin.

 

Hvað segiði um heimilistækjabyltingu?  Best ég mæti með flatskjáinn minn og safapressuna, slái þeim saman og öskri.....æ hvað var það aftur?

 

Æ já vanhæf ríkisstjórn.

  

http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=STOD2&programID=b2fab606-e8f9-4500-a4d9-15008d8978da&mediaSourceID=6ddd04a6-8a02-4fd1-92a8-682f1dbca6b4&mediaClipID=dc282104-9bd3-45ef-8324-5ff4fae6fa62 


Og hefst þá moksturinn!

Árni byrjar í nýrri vinnu á morgun.  Ef vel gengur gæti það verkefni tekið ár.

 

Skyndilega höfum við tækifæri til að snúa hlutunum við og ótrúleg vellíðan sem fylgir því að vera aftur gerandi í eigin lífi.

 

Nú er undir okkur komið að snúa vörn í sókn, bæta stöðu okkar eins og hægt er þar til lán losna úr frystingu.

 

Vitum auðvitað ekkert hvernig þetta verður ef lán halda áfram að rjúka upp úr öllu valdi og við það bætast afborganir af láninu sem við höfum lifað á í vetur.

 

En í fyrsta skipti í marga mánuði finnst mér eins og þetta hljóti að fara allt vel.

 

Gott ef ég næ ekki aftur djúpa andanum.


Spenna í loftinu

Fór í fyrsta flugið mitt í gær.

 

Mikil spenna var í heimilisfólki kvöldið fyrir flug.  Bjarni (8) sveimaði í kringum mig og þurfti að koma við mig og faðma í tíma og ótíma, ef hægt er að segja að börn faðmi mann í ótíma, enda kom í ljós að hann var mjög áhyggjufullur.  Róaðist þó á endanum eftir að hann hafði spurt nægu sína um brotlendingar og hvað hann ætti að gera ef ég kæmi ekki aftur heim.

 

Öll börn á heimilinu sem kunna og geta farið fram úr rúminu komu svo upp í um nóttina og á einum tímapunkti áttaði ég mig á að þau héldu öll í mig.

 

Á leiðinni til Keflavíkur fann ég svo í veskinu mínu ástarbréf frá Bryndís Ingu (9).

 

Er hægt að biðja um betra veganesti?

 

á rauðu ljósi

Ótrúlega gaman að vera byrjuð aftur að vinna.

 

Er síðustu 3 daga búin að vera á mjög svo nauðsynlegu og skemmtilegu upprifjunarnámskeiði.  Fékk að hoppa út í neyðarrennu, príla upp í björgunarbát, slökkva eld með kæfandi reykhettu á hausnum, hnoða og blása lífi í dúkku og kynna mér allt sem er búið að breyta.

 

Sem er meira en lítið enda búin að vera frá í eitt og hálft ár.

 

Tekur smá tíma að finna taktinn eftir öll þægilegheitin og því búið að ganga á ýmsu við að koma öllum út og á rétta staði á réttum tíma.

 

Gekk þó ágætlega í morgun.  Þurfti bara að hlaupa stigann 3 sinnum að ná í eitthvað sem gleymdist, nestið fór með og allir mættu á réttum tíma.  Á rétta staði.

 

Á stórum gatnamótum leit ég í baksýnisspegilinn.  Það vantaði bara eitt.

 

Ég gramsaði í töskunni, fann varalitinn og varalitaði mig,

 

með túrtappa.

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband