morgunsamskipti feðganna
5.2.2009 | 16:06
Snorri (3) tók eitt af sínum aldurstengdu illauppalinn fýluköstum í morgun, stundum hentar honum alls ekki að hlutirnir séu ekki eftir hans höfði.
Hann fær nú yfirleitt bara að eiga það við sjálfan sig, nema á morgnana þá verða allir að drífa sig af stað.
Árni reyndi að ýta á eftir honum með því að segja að nú yrði hann að koma, pabbi væri að verða of seinn í skólann en þá kemur:
"þú átt ekki að fara í skólann, þú átt að fara í vinnuna!"
Hvers vegna er honum ekki sama?
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
RÚTÍNA - my dear - RÚTÍNA er það sem þau finna öryggi í og pabbi var vanur að fara í vinnuna en ekki í skólann Svo yndisleg þessi blessuðu börn..........
Helga Sigríður Úlfarsdóttir, 5.2.2009 kl. 21:00
algjörlega og sérstaklega í þessu ástandi-þá virkar það ekki að eitthvað sé öðruvísi en vant er. Hvað ætli hann segi þá þegar ég fer að vinna-hann hefur ekki glóru um að ég hafi einhvern tíma unnið.
Kristín Bjarnadóttir, 5.2.2009 kl. 23:31
Þá tekur hann nokkur góð þrjóskuköst á pabba sínum - sér í lagi ef þú vogar þér að láta þig hverfa yfir nótt í t.d. ameríkuflugi "Nei, ég vill fá mömmu - hún á að hátta mig" oþh........
Helga Sigríður Úlfarsdóttir, 6.2.2009 kl. 10:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.