Hristur Stefán
6.12.2008 | 02:53
Hvar eru svona snillingar í dag?
http://www.youtube.com/watch?v=FQ2o5Apl2UU
veit að mitt fólk kveikir og langar að heyra hvaða minningar það tengir við þetta lag!
Ég man eftir að sofna með risastór heyrnatól tengd í RISAstórar græjur.............
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
jú og spóla til baka á risastórum græjum.....tók upp á kasettu...............
Árni tengir við Green door-annan smell-á Egilsstöðum........Í Í ÓSKALÖGUM SJÚKLINGA!!!!!!!!
spurning um að taka aftur upp óskalög sjúklinga og óskalög sjómanna?
Kristín Bjarnadóttir, 6.12.2008 kl. 03:00
Vá ertu að grínast!!!
Ég átti sko plötuna og sofnaði með þetta á fóninum á kvöldin. Þvílík sæla.
Borghildur (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 00:39
Ég er svo aftarlega á merinni að ég kynntist þessu meistaraverki í gegnum MiniPops. Það þótti ekkert slor, en ég hafði ekki hugrekki til að fara í frumgerðina.
Viðar (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 18:09
Shakin Stevens, maður minn Hvernig gat ég gleymt þessari elsku? Oh Julie og Green door. Algjörar perlur.
Voru það ekki Lög unga fólksins og Skonrokk?
Skyldi hann Siggi Hlö líka vera búinn að gleyma?
Hrund Traustadóttir, 8.12.2008 kl. 20:29
Hrund Árni var á Egilsstöðum, voru auðvitað allt aðrir þættir þar en í Reykjavík!
Kristín Bjarnadóttir, 8.12.2008 kl. 21:28
Ég hugsaði það einmitt eftirá. Af hverju var hann ekki að hlusta á Lög unga fólksins? Ah, hann bjó á landsbyggðinni Var hann ekki líka voða mikið hjá afa sínum? Óskalög sjómanna og sjúklinga var það heillin.
hehe.
Hrund Traustadóttir, 9.12.2008 kl. 18:14
Ég má náttúrulega til með að taka hanskann upp fyrir okkur dreifbýlistútturnar og ég ætla nú bara að minna ykkur á að það var nú ekki fleiri stöðvum að dreifa þarna um árið en rás eitt og tvö (já þeir gömlu góðu).
En hvað um það í minni sveit náðust báðar þessar rásir svo Árni hafði örugglega sama valmöguleika í stórborginni Egilstöðum. Óskalög sjúklinga og sjómanna voru einfaldlega betri þættir og fyrir þroskaðri einstaklinga heldur en lög unga fólksins.
Kveðja Ragnhildur
Ragnhildur (IP-tala skráð) 11.12.2008 kl. 21:47
Þetta átti auðvitað að heita grín með landsbyggðina og ekki nokkur ástæða til að taka okkur Diddu alvarlega þegar sá gállinn er á okkur
En það er rétt, Óskalög sjúklinga og sjómanna voru fyrir þroskaðri einstaklinga
Hrund Traustadóttir, 12.12.2008 kl. 19:28
Gaman að segja frá því að hann Hristu Stebbi er búin að vera gera mig brjálaða síðan ég í barnslegri einlægni minni smellti á linkinn hér fyrir ofan. Þrátt fyrir mikla innrás jólalaga allt í kring þá er hann Stebbi allt of ofarlega í huga mér hvern dag.
Helena og co (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 18:18
það á heldur ekki að taka mig sérlega alvarlega:)
Kveðja Ragnhildur
ragnhildur (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 19:09
Þetta með lög unga fólksins. Þau voru á kvöldin ef ég man rétt. Þá var þægur sveitapiltur farinn að sofa. Aftur á móti voru meningarþættirnir óskalög sjómanna og óskalög sjúklinga um helgar, á milli mjalta.
Árni (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 20:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.