Mánudagur til mæðu
1.12.2008 | 21:23
Hlaut að koma að því. Eins og við erum nú að reyna að vera bjartsýn þá auðvitað koma svona dagar inn á milli.
Það styngur allt.
Ekki síst að sjá allt of stóra slummu fara út af bankareikningnum.
Vélarnar hans Árna boðnar upp í dag, hans virðist ok með það en hlýtur að vera mjög skrítin tilfinning. Að standa í verksmiðjunni og fylgjast með fólki bjóða í vélar sem hann batt miklar vonir við. Sjá fyrirtækið leyst upp.
Fór til féló í síðustu viku og viðkomandi starfsmaður hefur ekki einu sinni fyrir því að svara beiðninni. Áttum að fá svar síðasta fimmtudag en hún hringdi ekki og svarar ekki skilaboðum. Fékk nú líka mest á tilfinninguna að við teldumst í sjálfskaparvíti.
Skrítin staða og vond.
Ekki mikið meira um það að segja.Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Sendi risaknús til ykkar. Kíki alltaf reglulega hér við til að fylgjast með ykkur. Kveðja úr Ennishvarfinu
Dagmar Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 21:52
Þetta eru súrrealískar stundir.
Risaknús ti ykkar flotta fjölskylda!
Borghildur (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 00:25
Knús til ykkar kæru vinir
Hrund Traustadóttir, 8.12.2008 kl. 20:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.