t.d í júní
15.11.2008 | 00:28
Úr fréttablaðinu 11.nóv. 08
EFNAHAGSMÁL Nokkur áhætta er
fólgin í því að frysta afborganir
af erlendum íbúðalánum strax,
enda ekki hægt að útiloka að
krónan verði enn veikari en hún
er nú þegar frystingu lýkur.
Algengt er að frysting gildi í
fjóra mánuði. Útfærslan er
misjöfn milli banka. Þetta er
viss áhætta, segir Edda Rós
Karlsdóttir, hagfræðingur hjá
Landsbankanum. En mikilvægast
er að þeir sem taka ákvörðun
um að frysta lán haldi áfram að
leggja til hliðar sem nemur
afborgun af láninu, til dæmis í
júní, þegar ástandið á gjaldmiðlinum
var eðlilegra.
Gott að það er einhver sem bendir fólki á að sýna nú smá fyrirhyggju og leggja til hliðar sem nemur afborgun af láninu, til dæmis í júní.
Gott að það er einhver sem bendir fólki á að eyða ekki öllu í sjálft sig heldur leggja til hliðar sem nemur afborgun af láninu, til dæmis í júní.
Gott að það er einhver sem bendir fólki á að það er ekki viturlegt að taka áhættu með peninga heldur leggja til hliðar sem nemur afborgun af láninu, til dæmis í júní.
Við þurfum að frysta okkar lán af einni ástæðu aðeins. Við sjáum ekki fram á að eiga fyrir þeim.
Þótt það sé í júní.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:22 | Facebook
Athugasemdir
Og ekki var nú aðgerðarpakkinn til bjargar fjölskyldum í landinu til að hrópa húrra fyrir! Nánast hægt að segja að fólk í vandræðum geti bara étið það sem úti frýs!
Knús til ykkar.
Harpa
Harpa (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 12:57
Er hún ekki að meina að með frystum afborgunum, þá sé fólk ekki að borga af láninu en leggur til að fólk leggi í sparnað þá upphæð sem greidd var af láninu í júní sl. ?
Eða er ég úti á túni að bíta frosið gras?
Katrín Brynja (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 13:54
jú jú hún er auðvitað að tala um það.
En þeir sem eru komnir í þá stöðu að þurfa að frysta lánin sín eru, held ég, flestir á leið eða komnir í það slæm mál að það að minna fólk á að leggja fyrir virkaði mjög stuðandi á mig.
Didda (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 14:17
Góður punktur, Didda.... eða ertu kölluð Kristín núna??? Get bara séð þig sem Diddu, má ég kalla þig það?
Annars gaman að sjá að þú skyldir hafa lesið bloggið mitt, veit ekki hvernig þú fannst það eiginlega.... ekki er ég að auglýsa neitt líka gaman að lesa þitt blogg hér, er búin að lesa í gegnum nokkur þótt ég hafi bara kommenterað á þetta, og þú ert jafn góður penni og þú varst. Manstu hvernig við yfirleitt "kepptumst" eða öllu heldur skiptumst á að vera með hæstu einkunnir fyrir ritgerðir....?
Allavega finnst mér mjög gaman að vita af bæði þér og Hrund hér, ég hafði ekki hugmynd um að þið væruð að blogga og þá er það svo skemmtilega óvænt og upplýsandi að lesa pínu um ykkar hugsanir, skoðanir og líf.
Hlakka til að lesa meira
Knús frá Lilju Bolla (ótrúlegt hvað þetta "Bolla" hefur fest við mig alltaf, og flestir lesa það sem bolla (sbr. feitabolla) og eru svo mjög hissa að ekki mætir þeim akfeit kelling þegar þeir hitta mig
Lilja G. Bolladóttir, 16.11.2008 kl. 19:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.